Um Jolla
Jolli í Hafnarfirði er fyrir löngu orðinn þekktur meðal Hafnfirðinga og annarra sem hann hafa sótt en hann verður fljótt fastur viðkomustaður hjá þeim sem þar koma við.
Í Jollanum má finna mikið úrval af frábærum skyndibita fyrir fólk sem er á ferðinni. Hamborgarar, bátar, pylsur, bæði djúpsteiktar og venjulegar, samlokur, ís og svona gætum við haldið lengi áfram.
Renndu við í Jollann næst þegar þú ert í nágrenninu og hungrið kallar – við svörum kallinu.
Við erum í Helluhrauni 1, með þrjár bílalúgur, veitingasal og góða þjónustu.
Við hlökkum til að sjá þig!
